Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Í uppáhaldi

A lady in the water
eftir
M. Night Shyamalan

Innskráningar kubbur

Söngvakeppnin

21. janúar 2007 klukkan 03:10
Núna á RÚV er undankeppni evrópsku söngvakeppninnar, þ.e.a.s. keppni um hvaða íslenskt lag fer áfram í alvöru keppnina.

Mig langar að segja nokkur vel valin orð um þetta so far....

VIÐ EIGUM AÐ HÆTTA ÞESSU KJAFTÆÐI.
ÍSLAND GETUR EKKERT Í ÞESSARI KEPPNI AFÞVÍ ÍSLAND KANN EKKI AÐ SEMJA SKEMMTILEG OG FJÖRUG LÖG SEM GETUR HUGSANLEGA KOMIST Í AÐALKEPPNINA.
VIÐ ERUM ÓGEÐSLEGA FOKKINGS VÆMIN.
ÞESSI ÍSLENSKA UNDANKEPPNI ER ÓGEÐSLEG, HVAÐ ER MÁLIÐ AÐ KOMA MEÐ SILVÍU NÓTT Í ÞETTA?
ÞEIR FÁU SEM REYNDU AÐ FLYTJA FJÖRUGT LAG ERU HREINT ÚT SAGT OF GAMLIR OG OF ASNALEGIR.
HVAÐ ER AÐ!?!

Í alvöru, hvað er að? - Getum við ekki reynt að koma með eitthvað almennilegt svona einu sinni?
Afhverju þurfa langflestu lögin að snúast um:
Ástina.
Hvað einhver er æðislegur.
Hversu mikið söngvarinn saknar einhverns.
"Þúúúúú, gafst mér allt" - OMFG.
AFHVERJU ÞARF ALLT AÐ VERA ÓGEÐSLEGA VÆMIÐ?

Hvenær ætla forsvarsmenn þessarar keppni að breyta reglunum þannig að það má semja og flytja ensk lög í íslensku undankeppninni? - ÞAÐ ER HVORT SEM ER ALLTAF SUNGIÐ Á ENSKU.
Það þýðir nefnilega ekkert að syngja á íslensku af því VIÐ ERUM NÓGU ÓGEÐSLEG FYRIR Í ÞESSARI KEPPNI.

Hvað er annars málið með gaura sem eru nefnilega ekkert flottir en reyna það svo ofur mikið að þeir sökka bara í kjölfarið? - Hvað er málið með gamla gaura með grátt, sítt hár og með það í tagl? HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ NÆSTUM-SKÖLLÓTTA-GAURA-SEM-ERU-ÓGEÐSLEGA-FALSKIR-AÐ-RESTIN-AF-HEYRNINNI-MINNI-DEYR?!

Ég spyr bara enn og aftur, hvað er að? - Hvar er Botnleðja? Hvar er svala fólkið? Hvað varð um almennilegu lögin? HVAÐ VARÐ UM ALMENNA SKYNSEMI? Hvernig getur eitt land verið svona virkilega ömurlegt í einhverju?

Já Actavis, FÁIÐ YKKUR ANNAÐ LAG Í ÞESSA HELVÍTIS AUGLÝSINGU!
Hvernig getur þetta lið, sem er á keppninni sjálfri, haldið þetta út án þess að..:
..ÆLA af ógeði
..Ekki PISSAÐ í sig yfir ÖMURLEGHEITUNUM
..EKKI DÁIÐ?

HREIMUR ÞÚ SÖKKAR!

Ég get svo svarið það að kókið mitt varð kóklaust, flögurnar mínar hættu að vera stökkar, nammið mitt missti allan sykurinn og varð holt, skipið mitt í EVE sprakk, Sað varð skemmtileg (fyrir MA-ingana), EISTUN MÍN MINNKUÐU þegar ég horfði á þetta.

/me dies.
Guðlaugur Ellert

BIÐST AFSÖKUNAR...

04. janúar 2007 klukkan 16:57
Ég vil biðjast afsökunar á framferði mínu gagnvart aðdáendum mínum. Ég hef lítið verið að blogga og hef barasta ekkert gert.

EN!

Á meðan þið bíðið eftir stórglæstu bloggi um jólin mín og áramótin þá getið þið lesið "Hver er gullið?" ! - Já það er rétt, ég hef uppfært upplýsingarnar um mig. Endilega skoðið það.


bless í bili.
Guðlaugur Ellert

Tónleikar og önnur dægurmál.

01. desember 2006 klukkan 13:47
Fyrir u.þ.b. sex og hálfum tíma lauk svokallaða Rockstar hátíðin í Laugardalshöllinni.
Nokkrir vel þekktir tónlistarmenn spændu upp raddir sínar og þar má nefna hinn ástsæla ástralann Toby.

Á móti sól byrjaði kvöldið með Magna í fararbroddi, þó fimmtán mínútum of seint. Afhverju geta tónleikar aldrei byrjað á tilsettum tíma?
Stjörnurnar skiptust á, á sviðinu þegar ÁMS lauk sínu framlagi og Húsbandið gekk til leiks. Húsbandið lék afar vel og þeim tókst að halda uppi stemningu út allt kvöldið.

Það var tekið vel á móti Dilönu og Storm en það komst varla í hálfmána við það sem Toby fékk. Það ætlaði allt um koll að keyra, bókstaflega, þegar Toby gekk fram á sviðið. Magni fékk sinn skerf líka.

Þetta átti víst að vera áfengis- og reyklaus skemmtun en ég sá til margra með bjór í hönd, sígarettu í hinni og dauðann í kringum sig. Það var ekki fyrr en eftir tónleikana að ég frétti að það var víst áfengissala á staðnum. - Hver var þá tilgangurinn í að setja á miðann:
"Reykingar ógilda miðann. Ölvun ógildir miðann" - Ég bara spyr?
---

En þá að öðrum málum. Eins og þið sjáið þá er komið nýtt lúk og eitt stykki bæn hérna hægra megin -->

Eftir nákvæmlega 2 tíma og 35 mínútur (s.s. þegar ég skrifa þessi orð) þá verð ég á flugvelli Reykjavíkur að bíða eftir einni Fokker sem fer með mig aftur til Akureyrar, bæjarfélags þar sem hámenning og 18-ára-aldurstakmark-á-pöbbum ríkir.

En það er komið nóg í bili, þarf hvort sem er að skutla brósa í skólann bráðum.

Tschüss,
Guðlaugur Ellert
Guðlaugur Ellert

James Bond!

20. nóvember 2006 klukkan 19:26
Ég fór á Casino Royale á föstudaginn (frumsýninguna) sem er nýja James Bond myndin og ég verð að segja eitt um myndina.

VÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ!

Ég get svo svarið það, Daniel Craig er án efa besti James Bond hingað til. Hann er eitur svalur sem James Bond og hann nær hlutverkinu alveg ótrúlega vel!
Ég hélt ekki sæði yfir myndnni, svo svöl var hún.

Casino Royale hefur allt, geðveika spennu, svala sögu, GEÐVEIKAR GELLUR og töff bíla. Myndin fær 5 af 5.

En þá að öðrum fréttum.

Rockstar nálgast óðfluga, ég fer með flugi á fimmtudeginum sem er sama dag og tónleikarnir eru haldnir. Svo fer ég snemma föstudagsmorgun aftur með flugi til Akureyrar.
Þess má geta að árshátíðin er á föstudeginum (1. des) en ég mun ekki mæta á þá samkomu.

Nóg af snjó hérna btw.
Guðlaugur Ellert

Rockstar og tilgangurinn með þessu öllu saman.

12. nóvember 2006 klukkan 10:27
Heil og sæl!

Ég veit að það er eitthvað síðan ég bloggaði seinast svo hérna kemur það nýjasta sem er að gerast.

Um daginn þá keypti ég miða á Rockstar tónleikana sem verða haldnir 30. nóv, ákveðinn vinahópur fer saman og auðvitað fer ég með því ég tilheyri þessum ákveðna vinahópi.
Við förum með flugi sama dag og tónleikarnir eru haldnir og komum til baka snemma næsta dag. Vona að þetta verði þessi virði, kannski verður eitthvað drukkið fyrir tónleikana en það kemur ljós.

En nú að seinni hlutanum af fyrirsögninni. Hver er tilgangurinn með þessu öllu saman? - Hver er tilgangurinn með lífinu?
Það datt bara á mig sú hugmynd að tilgangurinn væri í raun dauðinn. Að tilgangurinn væri að ákveða ca hvenær við deyjum.
T.d. með því að ákveða að fara í framhaldsskóla/háskóla þá erum við að ákveða að lifa aðeins lengur og reyna að áorka einhverju áður en við deyjum. Það er svo til fólk sem að segir við sjálfan sig: "Tilhvers að vesenast í að fresta þessu? Ég á hvort sem er eftir að deyja á endanum, afhverju að reyna að verða eitthvað þegar þú deyrð hvort sem er?"

Það fer auðvitað eftir utanaðkomandi öflum hvað þú ákveður að gera, hvernig þú varst alinn upp og hversu mikils var ætlast til af þér.
Dæmi: Barn sem á enga vini og hefur engin félagsleg tengsl við annað fólk (utanaðkomandi öfl), barn sem að átti lélega foreldra sem að skiptu sér lítið af því og var alveg sama um það og eða að það var misnotað (illa alið upp) og svo að lokum, barn sem að fékk enga ábyrgð í hendurnar og enginn ætlaðist til neins af því. (enginn ætlaðist til neins frá barninu).
Þetta barn er líklegra til að ákveða að enda líf sitt heldur en að reyna að áorka einhverju áður en það deyr.

Hitt dæmið þarf ég varla að segja frá, hugsið bara um algjöra andstæðu við fyrra dæminu.

En hinsvegar getur þetta allt saman verið ein stór steypa. Eða hvað?
Guðlaugur Ellert

Toggi - Puppy

01. nóvember 2006 klukkan 07:13
Nýlega uppgötvaði ég, að lag sem hefur verið í mjög svo miklu uppáhaldi hjá mér, hvað það heitir. Ég komst að því að lagið heitir Sexy Boy og er eftir íslenska tónlistarmanninn Toggi.

Toggi hefur gefið út eina plötu/disk og heitir hann 'Puppy'. - Ég mæli eindregið með að fólk drífi sig í næstu búð og kaupi diskinn því þarna er hreinn snillingur á ferð. Þið getið hlustað á 3 lög á disknum hans á þessari síðu hér: http://www.toggimusic.com/home/audio/

Ég er ekki að grínast, drullist í næstu búð og kaupið fjandans diskinn! - Ef þið hafið dl honum þá verðið þið að a.m.k. að kaupa hann til að styðja íslenska tónlist. Ég geri það alltaf.
Guðlaugur Ellert

13.3" MacBook!

29. október 2006 klukkan 04:39
Í fréttum er það helst að ég keypti mér 13.3" MacBook s.l. miðvikudag. Þessi dýrgripur kostaði mig hundraðtuttuguogníuþúsundogníuhundruð krónur og er vel þess virði!

Þessi ótrúlega tölva hefur sýnt mér ljósið. - Ég mæli ekki með neinu öðru en MacBook eða MacBook pro.


Vetrarfrí er að skríða til okkar í Schola Akureyrensis (Menntaskólinn á Akureyri) og verður það frítt nýtt óspart til drykkju og letis. Kannski verður gluggað eitthvað smá í bækur.
Einnig langar mig að nota tækifærið og segja að núna hefst nýtt upphaf á lífi mínu. Ég vona að þær breytingar sem ég gerði eiga eftir gera það sem ég vonast til.

En þangað til næst, verið góð við allt og alla. Þá gengur allt svo miklu betur.
Guðlaugur Ellert

Skálarferð og andaglas.

20. október 2006 klukkan 02:32
Í gær (18.10.2006) fór ég í skálarferð með bekknum mínum í MA (2.G). Þetta er ferð sem fyrsti og annar bekkur fara í til að kynnast bekknum betur.
Það er allt gott hægt að segja um þá ferð, nema sumir einstaklingar hefðu mátt lenda í slysi áður en ferðin hófst en nóg um það.

Ég sá um að elda matinn ofan í krakkana, með hjálp nokkurra peða. Það var hamborgari að hætti Gulla Ella og það má segja að allt ætlaði um stól að aka þegar maturinn var borinn fram af yndisfögrum dísum (Árni Pétur og Sóley).

Það var víst skipuð 'skemmtananefnd' en hún brást illilega og var ekki með neina skemmtun, í staðin spiluðum við á banjó og dönsuðum þjóðdansa. Hermann sá um tónlist og Vigfús leiddi dansinn.

Þegar leið á kvöldið þá ákváðu þrjár dömur að fara í andaglas. Ég varð auðvitað að prófa það, ég verð samt að viðurkenna að ég var frekar hræddur við að fikta í ókunnum öflum en ég bara varð að prófa.
WORD OF ADVICE: Ekki prófa andaglas nema þið séuð reiðubúin að taka því sem gerist.

Þið sem þekkið mig vitið að ég er ekki mikill grínisti þegar kemur að svona málum og I shit you not, þetta var magnað. Það var alveg ótrúlegt að finna glasið hreyfast og svara spurningum.

Þegar klukkan var farin að nálgast morgun þá voru flestir sofandi nema ég, Þórdís, Fúsi og Pétur. Við áttum létt spjall um allt og ekkert. Ég og Þórdís ákvaðum að eignast barn saman, meira verður sagt frá því eftir barnagerð. (Næsta vika)

En þá er þessari sögu að ljúka. Endilega skiljið eftir komment.
Guðlaugur Ellert

Enn fleiri aftanákeyrslur af völdum kvenna!

07. október 2006 klukkan 20:50
Nýlega barst mér sú frétt í vélrænu eyrun mín að bekkjarsystir mín keyrði á!

Hún var víst að keyra í skólann og tók ekki eftir að bíll var að fara beygja eða taka U-beygju og hún klessti beint á hann! - Enn eitt dæmið um vanhæfni kvenna til aksturs.

Það er lítið sem ekkert búið að gerast, fór á rocco's í gær, fékk mér einfaldan vodka burn sem var ágætt. Það þarf nefnilega ekkert alltaf að hella sig fullan þegar maður fær sér í glas. Finnst gott að setjast niður með fólki með áfengi í annari hönd og hina á pungnum.
En það sem er að gerast í kvöld er eftirfarandi:
Barinn, Barinn, Barinn, Barinn, BALL MEÐ PÁLI ÓSKARI únf únf únf únf!

Vonandi tekst mér að hella mig vel fullann, en ekki það fullann að ég man ekkert hvað ég gerði af mér.

STAY TUNED!
Guðlaugur Ellert

Liverpool tapar og aftanákeyrsla!

01. október 2006 klukkan 00:52
Í fréttum er þetta helst;
LIVERPOOL TAPAÐI 2-0 Á MÓTI BOLTON.

Meira var það ekki í bili.
n.b. híhí bjössi.

En ég á víst eftir að segja ykkur netverjum frá aftanákeyrslunni sem ég lenti í fyrir viku síðan. Það gerðist hjá sundlauginni á Akureyri, ég er stopp á göngubraut.. Semsagt ég er að hleypa fólki yfir. Kemur þá ekki þessi ljóshærði kvenmaður og þrusar aftan í demantinn minn! - Hún segir "Ég var ekkert að keyra neitt hratt sko.."
Sure.

Löggan er kölluð á staðinn með tilheyrandi skýrslutöku og pappírsveseni. Sem betur fer er svona aftanákeyrsla alltaf þannig að sá sem keyrði á fórnalambið er í órétti.
Tryggingarnar hennar borga semsagt skaðann.
En það merkilega er að ég fékk einungis tvær agnarsmáar rispur og smá útferð á lakkið en VW merkið hennar (framan á) datt út. Plús fleiri rispur og númeraplatan beygð.

Bíllinn minn er nefnilega harður kaggi. Fyrir ykkur sem eruð að spá í hvaða dýrgripur þetta sé þá er þetta VW Golf '01 model. - Myndir koma seinna.

En boðskapurinn hérna er eftirfarandi: KONUR KUNNA EKKI AÐ KEYRA.
Guðlaugur Ellert

..letting go

Guð gefi mér æðruleysi,
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt,
kjark til þess að breyta
því sem ég get breytt
..og vit til að greina þar á milli.

Könnun

Hefuru séð A lady in the water?